| Um viðburðinn
Hrafntinna er einstakur sviðslistaviðburður sem hrífur áhorfendur með sér í ferðalag um ímyndað landslag. Listafólkið yfirstígur hefðbundin landamæri og fléttar saman tónlist, hljóðlist, dansi, gjörningum, leikhúslistinni, myndlist og ljósahönnun þannig að úr verður leiftrandi litaspjald sem er sannur óður til náttúrunnar. Stjórnandinn notar rafrænan hanska til að skapa og kalla fram hljóð og magnar þannig enn frekar leik söngvara og tónlistarfólks að andstæðum, orku og hreyfingum. Með spuna og innsæi leyfir listafólkið tónlist og hreyfingum að kvikna í augnablikinu. Í sýningunni eru mörk hefðbundinna hugmynda um óperuformið rofin og unnið úr frumkröftum náttúrunnar sem skapa flæði frá hinu djúpa, dimma og óþekkta og inn í það óvænta og berskjaldaða þar sem við finnum fyrir viðkvæmni og fegurð.
Gestum býðst að hreyfa sig um á meðan á sýningu stendur og leyfa ímyndunaraflinu að útvíkka ferðalagið. Á bak við Hrafntinnu stendur framsækinn hópur listafólks úr fremstu röð sem býður gestum Íslensku óperunnar á Listahátíð að njóta upplifunar sem á sér enga líka.
Listrænt teymi - HRAFNTINNA
Halldis Rønning - Tónskáld & stjórnandi
Hilmar Thordarson - Tónskáld & raftækni
Thorbjörg Jónsdottir - Vídeóverk
Í listrænu samstarfi við;
Karen Eide Bøen - Danshöfundur
Mira Svanberg - Lýsing
Niels Thibaud Girerd - Sviðsetning
Oddur Jónsson - barítón
Ragnheiður Jóhannsdóttir- sópran
CAPUT Ensemble:
Guðni Franzson - klarinett
Þuríður Jónsdóttir - flautur
Sigurður Halldórsson - selló
Hrafnkell Örn Guðjónsson (Keli) – slagverk
IMNO ensemble:
Jostein Stalheim - harmónikka
Guro Skumsnes Moe - bassi & rödd
Else Olsen Storesund - píanó
Tabula Rasa Vocal Ensemble:
Sigrun Jørdre - sópran
Zsuzsa Zseni - mezzósópran
Tord Kalvenes - tenór
Arild Rohde - tenór
William Hjort-Johansen - Aðstoð við hljóðvinnslu
Gunnbjørg Johannessen – Framleiðsla
| Aðrir viðburðir
Fagmennska - Frumkvæði - Gleði - Samvinna
Takk fyrir skráningu. Póstlistaskráning er móttekin