Tónskáld
Tónskáld – Daníel Bjarnason
Líbrettó
Kerstin Perski
Tungumál
Enska
Lengd
95 mín. án hlés
Frumsýning
22. október 2022
| Um viðburðinn
Íslenska óperan mun sýna óperuna Brothers eftir Daníel Bjarnason þann 22. október 2022 í Eldborg.
Verkið fjallar um fórnarkostnað þess að fara í stríð, bræðralag og ástir og er byggt á samnefndri kvikmynd eftir Susanne Bier sem margir þekkja og librettóið er eftir Kerstin Perski.
Óperan, sem er fyrsta ópera tónskáldsins og var frumsýnd í Musikhuset í Árósum 2017 og í Eldborg 9. Júní 2018 og hlaut frábærar viðtökur áheyrenda og einróma lof gagnrýnenda. Leikstjóri uppfærslunnar er Kasper Holten sem var áður óperustjóri í Covent Garden en gegnir nú stöðu framkvæmdastjóra Det KongeligeTeater.
„Brothers er stórbrotin ópera og frábært að geta boðið íslenskum áhorfendum að njóta uppfærslunnar í annað sinn á Íslandi, en óperan var sýnd á Armel óperuhátíðinni í Budpest 2019 og mun verða sýnd á erlendri óperuhátíð haustið 2023" - segir Steinunn Ragnarsdóttir óperustjóri Íslensku óperunnar.
SÖGUÞRÁÐURINN
Hermennirnir Michael og Peter eru sendir á vígvöllinn. Michael fer frá Söru eiginkonu sinni og dóttur, Nadiu, og Peter frá eiginkonu sinni Önnu, sem er barnshafandi.
Þeir Michael og Peter eru taldir af þegar þyrla þeirra er skotin niður af óvinahernum. Minningarathöfn er haldin þeim til heiðurs. Spennu verður vart í fjölskyldu Michaels þegar kemur upp á yfirborðið að faðir Michaels hefur meira dálæti á honum en yngri bróðurnum, Jamie, og segir að Jamie hefði frekar átt að deyja en Michael.
Jamie vekur Söru upp um miðja nótt, hann er drukkinn og blóðugur eftir slagsmál. Sara hjálpar honum að hreinsa sárin. Þau rífast heiftarlega í fyrstu en sameinast síðan í því að syrgja Michael. Þau faðmast og halda hvort í annað eins og drukknandi manneskjur.
Michael hefur í raun lifað þyrluslysið af og snýr aftur. Anna, sem hefur alið barnið, vonast til þess að Peter muni þá líka snúa til baka. Yfirmaður Peters, ofurstinn, talar við Michael og spyr hann út í týndu hermennina. Michael heldur því fram að hann hafi ekki séð fleiri hermenn á lífi þar sem hann hafi sjálfur verið í haldi óvinahersins.
Michael virðist fjarrænn og honum reynist erfitt að aðlagast daglegu lífi. Nadia kvartar við móður sína yfir háttalagi föður síns. Jamie lagfærir rólu Nadiu og það er augljóst að hann og Sara eru orðin náin. Michael er afbrýðissamur og reiður út í Jamie og Söru og bregst á ofsafenginn hátt við því þegar dóttir hans Nadia óhlýðnast honum.
Eftir að hafa misst stjórn á sér ítrekað og vegið að Söru, játar Michael fyrir ofurstanum að hafa séð Peter á lífi. Ofurstinn biður hann um að þegja yfir þessari vitneskju og hætta að kvelja sjálfan sig. Á sama tíma birtist Sara heima hjá Jamie. Þau þrá hvort annað.
Í afmælisveislu Nadiu missir Michael algjörlega stjórn á sér. Hann gengur út til að hafa uppi á Önnu. Michael fær sig ekki til að játa hver örlög Peters urðu áður en honum sjálfum var bjargað. Þegar Michael kemur aftur í afmælisveisluna birtist honum draugur Peters og að endingu afhjúpar hann sannleikann og segir frá því sem gerðist í raun og veru: að hann hafi verið neyddur til þess að drepa Peter til þess að bjarga eigin lífi.
| Listrænt teymi
Hljómsveitarstjóri
Daníel Bjarnason
Leikstjóri
Kasper Holten
Aðstoðarleikstjórar
Amy Lane /Níels Thibaud Girerd
Leikmynda og búningahönnuður
Steffen Aarfing
Ljósahönnuður
Ellen Ruge
Myndbandshönnuður
Signe Krogh
| Hlutverk
Michael
Oddur Arnþór Jónsson
Sarah
Marie Arnet
Jamie
Elmar Gilbertsson
Nadia
Eva Jáuregui
Anna
Jóna G. Kolbrúnardóttir
Peter
James Laing
Faðirinn
Jakob Zethner
Móðirin
Auður Gunnarsdóttir
Ofurstinn
Hrólfur Sæmundsson
| Myndir
| Aðrir viðburðir
Fagmennska - Frumkvæði - Gleði - Samvinna
Takk fyrir skráningu. Póstlistaskráning er móttekin