Tónskáld
Engelbert Humperdinck
Líbrettó
Adelheid Wette
Tungumál
íslenska
Lengd
100 mín. / 3 þættir / 1 hlé
Frumsýning
25. nóvember 2018
| Um sýninguna
Ævintýraóperan Hans og Gréta eftir Engelbert Humperdinck er byggð á hinu klassíska ævintýri Grimmsbræðra sem fjallar um systkinin Hans og Grétu sem búa í skóginum ásamt foreldrum sínum og lenda í klónum á vondu norninni en tekst með samvinnu og hugrekki að klekkja á henni.
Tónskáldið samdi óperuna við leiktexta systur sinnar, Adelheid Wette, og upphaflega átti verkið að vera fyrir börnin í fjölskyldunni - en þau áttu að flytja það innan veggja heimilisins. Að endingu varð úr heil ópera sem var frumýnd í Weimar í desember árið 1893 og var það sjálfur Richard Strauss sem stjórnaði uppfærslunni. Síðan þá hefur óperan Hans og Gréta iðulega verið sýnd í aðdraganda jólanna.
Hljómsveitarstjóri uppfærslunnar er í höndum Bjarna Frímanns Bjarnasonar sem er tónlistarstjóri Íslensku óperunnar.
Þórunn Sigþórsdóttir leikstýrir uppfærslunni, Eva Signý Berger hannar leikmynd, um búningahönnun sér María Th. Ólafsdóttir og ljósahönnuður er Jóhann Friðrik Ágústsson.
Óperan er flutt á íslensku í þýðingu Þorsteins Gylfasonar og Reynis Axelssonar.
| Myndir
| Listrænt teymi
Hljómsveitarstjóri
Bjarni Frímann Bjarnason
Leikstjóri
Þórunn Sigþórsdóttir
Leikmyndahönnuður
Eva Signý Berger
Búningahönnuður
María Th. Ólafsdóttir
Ljósahönnuður
Jóhann Friðrik Ágústsson
| Hlutverk
Hans
Arnheiður Eiríksdóttir
Gréta
Jóna G. Kolbrúnardóttir
Móðirin (Geirþrúður)
Hildigunnur Einarsdóttir
Faðirinn (Pétur)
Oddur Arnþór Jónsson
Nornin
Dóra Steinunn Ármannsdóttir
Óli Lokbrá
Kristín Einarsdóttir Mäntylä
Fagmennska - Frumkvæði - Gleði - Samvinna
Takk fyrir skráningu. Póstlistaskráning er móttekin