Hrönn Þráinsdóttir

Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari stundaði nám hjá Erlu Stefánsdóttur og síðar hjá Jónasi Ingimundarsyni í Tónlistarskólanum í Reykjavík.


Í Þýskalandi stundaði hún nám við tónlistarháskólann í Freiburg og lauk þaðan Diploma kennaraprófi með ljóðasöngsmeðleik sem aukafag vorið 2004. Kennarar hennar voru Prof. Dr. Tibor Szasz í píanóleik og Prof. Hans-Peter Müller við ljóðasöngdeild.


Að því loknu stundaði hún nám við tónlistarháskólann í Stuttgart undir handleiðslu Prof. Cornelis Witthoefft þar sem hún lauk sumarið 2007 mastersnámi við ljóðasöngdeild skólans.


Hrönn hefur komið fram á tónleikum víða, m.a. í Þýskalandi, Austurríki, Noregi,Ítalíu,Grænlandi og á Íslandi sem einleikari, meðleikari og við flutning kammertónlistar. auk þess að hafa hljóðritað fyrir útvarp og leikið inn á geisladiska m.a.með kammersveitinni Ísafold.


Hún hefur tekið þátt í ýmsum hátíðum eins og Ung Nordisk Musik,,Músíkdagar í Færeyjum, Við Djúpið á Ísafirði og hátíðarinnar Berjadaga á Ólafsfirði


Hún hefur verið virk í flutningi nýrrar tónlistar m.a. á Myrkum Músíkdögum og með Kammersveitinni Ísafold, en lék með svetinni þegar Kammersveitin Ísafold hlaut  Íslensku tónlistarverðlaunin sem flytjandi ársins árið 2007.


Hrönn er kennari við Söngskólann í Reykjavík og  Tónlistarskólann í Reykjavík.


Listræn stjórnun

Share by: