Hin ástsæla ópera La Traviata eftir Giuseppi Verdi verður frumsýnd í Eldborg þann 9. mars 2019. Óperan sem fjallar um lífsgleðina, frelsið og forboðna ást er í þremur þáttum og var frumflutt í Feneyjum 6. mars árið 1853. Leiktextinn eftir Francesco Maria Piave er byggður á leikgerð skáldsögunnar Kamelíufrúin eftir Alexandre Dumas. Óperan hét upphaflega Violetta eftir aðalpersónunni og þykir ein sú allra fallegasta sem samin hefur verið.
Hljómsveitarstjóri verður tónlistarstjóri Íslensku óperunnar, Bjarni Frímann Bjarnason og leikstjóri er hinn kanadíski Oriol Tomas, sem hefur leikstýrt óperum víða um heim. Leikmyndahönnuður er Simon Guilbault, Sébastien Dionne hannar búninga. Videóhönnuður er Félix Fradet-Faquy.