|
AIDA – Ástarþríhyrningurinn –

Sviðsettir tónleikar með völdum köflum úr óperunni Aidu eftir Giuseppe Verdi
í Íslensku óperunni föstudagskvöldið 5. mars kl. 20
 
Aida-Ástarþríhyrninginn fer á svið í Íslensku óperunni föstudaginn 5. mars kl. 20. Hér er um að ræða sviðsetta tónleika þar sem öll helstu ein- og samsöngsatriði óperunnar Aidu eftir Verdi verða flutt, en Aida er ein þekktasta ópera sögunnar, og var síðast sett upp í Íslensku óperunni árið 1987. Á þessum sviðsettu tónleikum er tekinn fyrir ástarþríhyrningur aðalsöguhetja óperunnar; elskendanna Aidu, Radamesar og Amnerisar. Leikið er undir á píanó og byggir efnisskráin á hinum hrífandi aríum og samsöngvum sem flestir þekkja úr óperunni, en meðal þekktra kafla úr Aidu eru aríurnar „Celeste Aida“ og „Ritorna vincitor“, auk dúettsins „Morir, si pura e bella“, svo dæmi séu tekin.
Flytjendur eru nokkrir af okkar fremstu listamönnum á tónlistarsviðinu, stórsöngvararnir Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran, og Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór, sem á undanförnum árum hafa sungið aðalhlutverkin í nokkrum af allra vinsælustu óperuuppfærslum Íslensku óperunnar, t.d. Macbeth árið 2003, Toscu árið 2005, La traviata árið 2008 og Cavalleria Rusticana og Pagliacci árið 2008, ásamt Hörn Hrafnsdóttur, mezzósópran, sem Íslenska óperan kynnir nú til leiks í aðalhlutverki í fyrsta sinn í uppfærslu á sínum vegum.
Meðleikari á píanó er Antonía Hevesi, píanóleikari við Íslensku óperuna.
Miðaverði er stillt í hóf, aðeins 2.500 kr.
Kaupa miða á Aidu - Ástarþríhyrninginn! |