Íslenska Óperan
    
Íslenska óperan
Ingólfsstræti
Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400
Miðasala - Sími: 511 4200

 Óperan
Stjórnir og starfsfólk
Kór Íslensku óperunnar
Hel - ný íslensk ópera á Listahátíð
Hljómsveit Íslensku óperunnar
Myndir úr sýningum
Dagskrá síðustu missera:
 :::: Dagbók Önnu Frank - Vor 2008
 :::: Prímadonnurnar
 :::: Draugagangur í Óperunni
 :::: Óp-hópurinn - tónleikaröð
 :::: Hjaltalín og Daníel Bjarnason - tónleikar á Listahátíð
 :::: Camerata Drammatica - Jólatónleikar 2007
 :::: Vetrarferðin
 :::: Á niðurleið!
 :::: Hádegistónleikar 2007-2008
 :::: Ariadne - Haust 2007
 :::: Malarastúlkan fagra
 :::: Camerata Drammatica - Af ástum og vindmyllum, tónleikar 28. apríl 2007
 :::: Cavalleria Rusticana - Í samstarfi við Óperukór Hafnarfjarðar - Vormisseri 2007
 :::: ÓPERUSTÚDÍÓ 2007 - Systir Angelica og Gianni Schicchi
 :::: The Rake´s Progress - Flagari í framsókn - Vormisseri 2007
 :::: 39 þrep - gestasýning LA
 :::: Óperudagar Evrópu 16. - 18. febrúar 2007
 :::: Skuggaleikur - Ný Íslensk ópera - Haustmisseri 2006
 :::: Útgáfutónleikar Ljótu hálfvitanna
 :::: Brottnámið úr kvennabúrinu - Haustmisseri 2006
 :::: Óperustúdíó - Nótt í Feneyjum - Vormisseri 2006
 :::: HÁDEGISTÓNLEIKAR 2006-7
 :::: Litla hryllingsbúðin - Vormisseri 2006
 :::: Öðruvísi Vínartónleikar - Nýárstónleikar 2007
 :::: I Fagiolini - Masterklass í Óperunni - Vormisseri 2006
 :::: Óperustúdíó: Nótt í Feneyjum - vormisseri 2006
 :::: Tosca
 :::: Öskubuska - vormisseri 2006
 :::: Kammersveitin Ísafold: öðruvísi vínartónleikar - í janúar 2007
 :::: Söngvaraball 2006
 :::: Öðruvísi Vínartónleikar - janúar 2006
 :::: Tökin hert - haustmisseri 2005
 :::: Von - Áróra Bórealis - Haustmisseri 2006
 :::: Kabarett - haustmisseri 2005
 :::: Hádegistónleikar 2005-2006
 :::: Óperustúdíó: Apótekarinn - Vormisseri 2005
 :::: Tosca - Vormisseri 2005
 :::: Hádegistónleikar vormisseri 2005
 :::: Sweeney Todd - Haustmisseri 2004
 :::: Litla stúlkan með eldspýturnar - Haustmisseri 2004
 :::: Hádegistónleikar á haustmisseri 2004
 :::: Brúðkaup Fígarós - vormisseri 2004
 :::: Sígaunabaróninn - vormisseri 2004
 :::: Hádegistónleikar vormisseri 2004
 :::: Dokaðu við! - Haustmisseri 2003
 :::: Haustkvöld í Óperunni - Haustmisseri 2003
 :::: Mozart fyrir sex - vormissir 2003 og haustmisseri 2003
 :::: Tvær óperur á einu kvöldi - vormisseri 2003
 :::: Macbeth - vormisseri 2003
 :::: Hádegisgestir - vormisseri 2003
 :::: Hádegistónleikar á vormisseri 2003
 :::: Hádegistónleikar á haustmisseri 2002
 :::: Óperan í samstarfi við Tónlist fyrir alla 2002-2003
 :::: Skuggaleikhús Ófelíu - Haustmisseri 2001
 :::: Óperutvenna
Aida - ástarþríhyrningurinn
Ástardrykkurinn
Don Djammstaff
Wagner og Wesendonck
Óperuperlur
Janis 27
Þjóðlagaveisla - Söngbók Engel Lund
Cavalleria Rusticana og Pagliacci - haust 2008
La traviata - Vor 2008
Cosi fan tutte - Óperustúdíó 2008
Tónleikar Sir Willard White - Vor 2008
Saga Íslensku óperunnar
Fyrri verkefni Íslensku óperunnar
Í fyrsta skipti í Óperunni - Þetta er gott að vita
Heimilisfang og kennitala Íslensku óperunnar

 Vissir þú þetta?

Að sléttum hundrað árum eftir að Rigoletto var frumsýnd í Feneyjum, var óperan frumsýnd í Þjóðleikhúsinu...

 


Fyrsta frumsýning vetrarins hjá Íslensku óperunni, Ariadne (Ariadne á Naxos) eftir Richard Strauss, lítur dagsins ljós þann 4. október næstkomandi og koma hvorki meira né minna en sextán íslenskir einsöngvarar fram í sýningunni. Það er fátítt að óperur skarti svo mörgum einsöngshlutverkum og gefst því kjörið tækifæri til að heyra og sjá fjölda íslenskra söngvara í einni og sömu sýningunni. Hér er um að ræða bæði nokkra af þekktustu óperusöngvurum Íslands, sem starfa víða um heim við góðan orðstír, sem söngvara af yngri og upprennandi kynslóðinni, sem mikils mávænta af í framtíðinni.

Í helstu hlutverkum eru Hanna Dóra Sturludóttir sem Ariadne, Arndís Halla Ásgeirsdóttir sem Zerbinetta, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir sem Tónskáldið, Kolbeinn Ketilsson sem Bakkus, Ágúst Ólafsson sem Harlekin og Bergþór Pálsson sem Tónlistarkennarinn, auk þess sem leikarinn Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk Ráðsmannsins. Ingvar fer með hlutverk sitt á íslensku, meðan söngvararnir syngja upphaflega textann á þýsku.

Þetta er í fyrsta sinn sem óperan Ariadne á  Naxos er sett upp á Íslandi, og að öllum líkindum í fyrsta sinn sem ópera eftir Richard Strauss er sett upp hérlendis. Richard Strauss (1864-1949) skildi eftir sig fimmtán óperur alls, þar af nokkrar sem reglulega eru settar upp í óperuhúsum víða um heim, m.a.: Salome, Elektra, Der Rosenkavalier, Die ägyptische Helena og Capriccio. Nafnsins vegna er Richard stundum ruglað saman við nafna sinn Johann, höfundar hinnar vinsælu óperu Die Fledermaus. Þeir eiga þó ekki margt sameiginlegt!

Leikstjóri sýningarinnar er hinn þýski Andreas Franz. Þetta er í fyrsta sinn sem hann starfar við Íslensku óperuna, en hann á heiðurinn að mörgum glæsilegum óperusýningum víða um heim. Axel Hallkell Jóhannesson leikmyndahönnuður setur nú þriðju sviðsmynd sína á svið Íslensku óperunnar í ár, en hann átti heiðurinn að glæsilegri leikmynd óperunnar Flagara í framsókn, sem sett var upp síðastliðið vor og leikmynd íslensku óperunnar Galdra-Lofts. Búninga hanna Dýrleif Ýr Örlygsdóttir og Margrét Einarsdóttir, sem löngu eru landskunnar í íslenskum tísku- og leikhúsheimi, en starfa nú í fyrsta sinn við Íslensku óperuna. Hljómsveitarstjórn er í höndum Kurts Kopecky, tónlistarstjóra Íslensku óperunnar, og lýsingu hannar Björn Bergsteinn Guðmundsson.

Óperan Ariadne er í tveimur þáttum, og skiptist hún í Forleik fyrir hlé og Óperuna eftir hlé. Textann við óperuna samdi Hugo von Hofmannsthal.  

 


Söguþráður óperunnar Ariadne

Lesa meira >>

Ariadne: Aðstandendur sýningarinnar
Lesa meira >>

Lengd sýningarinnar
Lesa meira >>

MYNDIR ÚR ARIADNE
Viltu skoða myndir úr sýningunni Ariadne? Smelltu þá hér!



 Leita
 

Leikskrá Ariadne
 
MYNDIR ÚR SÝNINGUM
 
Facebook
 
Miðasala á netinu
 
 
Íslenska óperan - Ingólfsstræti - Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - Netfang: opera@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is
Vefstjóri er Inga María Leifsdóttir - Netfang: ingamaria@opera.is
Óperuvefurinn er unnin af Origo ehf.