Íslenska Óperan
    
Íslenska óperan
Ingólfsstræti
Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400
Miðasala - Sími: 511 4200

 Óperan
Stjórnir og starfsfólk
Kór Íslensku óperunnar
Hel - ný íslensk ópera á Listahátíð
Hljómsveit Íslensku óperunnar
Myndir úr sýningum
Dagskrá síðustu missera:
 :::: Dagbók Önnu Frank - Vor 2008
 :::: Prímadonnurnar
 :::: Draugagangur í Óperunni
 :::: Óp-hópurinn - tónleikaröð
 :::: Hjaltalín og Daníel Bjarnason - tónleikar á Listahátíð
 :::: Camerata Drammatica - Jólatónleikar 2007
 :::: Vetrarferðin
 :::: Á niðurleið!
 :::: Hádegistónleikar 2007-2008
 :::: Ariadne - Haust 2007
 :::: Malarastúlkan fagra
 :::: Camerata Drammatica - Af ástum og vindmyllum, tónleikar 28. apríl 2007
 :::: Cavalleria Rusticana - Í samstarfi við Óperukór Hafnarfjarðar - Vormisseri 2007
 :::: ÓPERUSTÚDÍÓ 2007 - Systir Angelica og Gianni Schicchi
 :::: The Rake´s Progress - Flagari í framsókn - Vormisseri 2007
 :::: 39 þrep - gestasýning LA
 :::: Óperudagar Evrópu 16. - 18. febrúar 2007
 :::: Skuggaleikur - Ný Íslensk ópera - Haustmisseri 2006
 :::: Útgáfutónleikar Ljótu hálfvitanna
 :::: Brottnámið úr kvennabúrinu - Haustmisseri 2006
 :::: Óperustúdíó - Nótt í Feneyjum - Vormisseri 2006
 :::: HÁDEGISTÓNLEIKAR 2006-7
 :::: Litla hryllingsbúðin - Vormisseri 2006
 :::: Öðruvísi Vínartónleikar - Nýárstónleikar 2007
 :::: I Fagiolini - Masterklass í Óperunni - Vormisseri 2006
 :::: Óperustúdíó: Nótt í Feneyjum - vormisseri 2006
 :::: Tosca
 :::: Öskubuska - vormisseri 2006
 :::: Kammersveitin Ísafold: öðruvísi vínartónleikar - í janúar 2007
 :::: Söngvaraball 2006
 :::: Öðruvísi Vínartónleikar - janúar 2006
 :::: Tökin hert - haustmisseri 2005
 :::: Von - Áróra Bórealis - Haustmisseri 2006
 :::: Kabarett - haustmisseri 2005
 :::: Hádegistónleikar 2005-2006
 :::: Óperustúdíó: Apótekarinn - Vormisseri 2005
 :::: Tosca - Vormisseri 2005
 :::: Hádegistónleikar vormisseri 2005
 :::: Sweeney Todd - Haustmisseri 2004
 :::: Litla stúlkan með eldspýturnar - Haustmisseri 2004
 :::: Hádegistónleikar á haustmisseri 2004
 :::: Brúðkaup Fígarós - vormisseri 2004
 :::: Sígaunabaróninn - vormisseri 2004
 :::: Hádegistónleikar vormisseri 2004
 :::: Dokaðu við! - Haustmisseri 2003
 :::: Haustkvöld í Óperunni - Haustmisseri 2003
 :::: Mozart fyrir sex - vormissir 2003 og haustmisseri 2003
 :::: Tvær óperur á einu kvöldi - vormisseri 2003
 :::: Macbeth - vormisseri 2003
 :::: Hádegisgestir - vormisseri 2003
 :::: Hádegistónleikar á vormisseri 2003
 :::: Hádegistónleikar á haustmisseri 2002
 :::: Óperan í samstarfi við Tónlist fyrir alla 2002-2003
 :::: Skuggaleikhús Ófelíu - Haustmisseri 2001
 :::: Óperutvenna
Aida - ástarþríhyrningurinn
Ástardrykkurinn
Don Djammstaff
Wagner og Wesendonck
Óperuperlur
Janis 27
Þjóðlagaveisla - Söngbók Engel Lund
Cavalleria Rusticana og Pagliacci - haust 2008
La traviata - Vor 2008
Cosi fan tutte - Óperustúdíó 2008
Tónleikar Sir Willard White - Vor 2008
Saga Íslensku óperunnar
Fyrri verkefni Íslensku óperunnar
Í fyrsta skipti í Óperunni - Þetta er gott að vita
Heimilisfang og kennitala Íslensku óperunnar

 Vissir þú þetta?

Rigoletto var fyrsta alíslenska óperuuppfærslan í Þjóðleikhúsinu...

 

FRUMSÝNING 9. APRÍL (ANNAR Í PÁSKUM) KL. 17
Hin vinsæla ópera Cavalleria Rusticana eftir Mascagni verður frumsýnd í Íslensku óperunni á annan í páskum. Uppsetningin er samstarfsverkefni Íslensku óperunnar og Óperukórs Hafnarfjarða og Elín Ósk Óskarsdóttir, stjórnandi kórsins, sem fagnar tuttugu ára starfsafmæli sínu í ár syngur hlutverk Santuzzu. Aðrir einsöngvarar eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Ólafur Kjartan Sigurðarson Hörn Hrafnsdóttir og Þórunn Stefánsdóttir. Á sjöunda tug kórmeðlima úr Óperukór Hafnarfjarðar taka einnig þátt í sýningunni ásamt rúmlega fjörtíu manna hljómsveit Íslensku óperunnar.

Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky og leikstjóri Ingólfur Níels Árnason. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslenska óperan setur þessa vinsælu óperu á fjalirnar en hún var sýnd í Þjóðleikhúsinu fyrir rúmlega fimmtíu árum. Sagan er sikileysk ástarsaga þar sem ástir og afbrýðisemi eru í aðalhlutverki. Tónlistin úr óperunni hefur notið mikilla vinsælda frá því hún var frumflutt árið 1890 bæði á óperusviðinu sem og í kvikmyndum og ýmis konar sjónvarpsefni og ættu flestir að kannast við brot úr verkinu. „Páskakórinn“ svokallaði úr Cavalleria Rusticana er reglulega fluttur af kórum um allt land á páskahátíðinni en óperan gerist einmitt á páskadag. Það er því vel við hæfi að frumsýna þetta meistarverk óperubókmentanna á annan í páskum.  

ÓPERUKÓR HAFNARFJARÐAR

Óperukór Hafnarfjarðar var stofnaður árið 2000 af Elínu Ósk Óskarsdóttur óperu­söng­konu sem jafnframt hefur verið aðalkórstjóri hans frá upphafi. Kjartan Ólafsson er aðstoðarkórstjóri og píanóleikari er Peter Máté. Félagar eru 70 talsins, tónlistarfólk af ýmsum toga, lærðir söngvarar, söngkennarar, hljóðfæraleikarar og einnig fólk með mikla reynslu af kórsöng. Formaður kórsins er Björg Karítas Jónsdóttir. Verndari Óperukórs Hafnarfjarðar er Frú Þuríður Pálsdóttir söngkona.

 

Myndin hér til hægri var tekin á æfingu kórsins á Cavalleria Rusticana á dögunum.

 

Kórinn hefur frá upphafi sérhæft sig í flutningi á óperu- og Vínartónlist sem hann hefur flutt bæði innanlands og utan og eru félagar samkvæmisklæddir við þau tækifæri. Kórinn hefur einnig veglega íslenska dagskrá á takteinum og klæðist þá gjarnan íslenskum búningi við flutning hennar erlendis, til kynningar á íslenskri menningarhefð.

 

Kórinn hefur gjarnan komið fram með kórstjóranum Elínu Ósk í hlutverki söngkonunnar og Kjartani aðstoðarkórstjóra sem einsöngvara. Margir landsþekktir listamenn hafa einnig komið að tónleikahaldi kórsins, bæði einsöngvarar og aðrir hljómlistarmenn.

 

Hróður kórsins hefur farið víða, en hæst ber flutning kórsins og Fílharmoníu­hljómsveitar Sofiuborgar á þekktum óperuverkum á sviði Filharmoníunnar þar í borg.  Einsöngvari var Elín Ósk Óskarsdóttir og hljómsveitarstjóri Bernharður Wilkinson.  Gala-Vínarkvöld kórsins er orðinn árlegur viðburður þar sem boðið er upp á allt það besta sem völ er á í mat, drykk og skemmtidagskrá. Jólatónleikar í Hafnarborg og Víðistaðakirkju eru að jafnaði á dagskrá kórsins auk tónleikahalds á landsbyggðinni. 

 

Í maí 2006 hélt Elín Ósk Óskarsdóttir upp á 20 ára starfsafmæli sitt sem óperusöngkona og átti Óperukór Hafnarfjarðar stóran þátt í þeim tónleikum ásamt þjóðþekktum ein­söngvur­um og leikurum. Í það sinn var Kurt Kopecky stjórnandi tónleikanna.

 

Hjá Óperukór Hafnarfjarðar eru mörg spennandi verkefni framundan næstu árin, bæði hérlendis og erlendis. Aðalverkefni kórsins núna árið 2007 er hins vegar samstarfsverkefni Óperukórs Hafnarfjarðar og Íslensku óperunnar, óperan Cavalleria Rusticana og er það frumraun kórsins í uppfærslu óperu á sviði.

 

 


 




 Leita
 

MYNDIR ÚR SÝNINGUM
 
Facebook
 
Miðasala á netinu
 
 
Íslenska óperan - Ingólfsstræti - Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík
Skrifstofa - Sími: 511 6400 - Fax: 552 7384 - Netfang: opera@opera.is
Miðasala Sími: 511 4200 - Fax: 552 7384 - Netfang: midasala@opera.is
Vefstjóri er Inga María Leifsdóttir - Netfang: ingamaria@opera.is
Óperuvefurinn er unnin af Origo ehf.