Enn eru nokkrir miðar lausir á síðustu aukasýningarnar tvær á Ástardrykknum, 27. og 29. nóvember kl. 20. Á sýningunum eru í aðalhlutverkum þau Garðar Thór Cortes og Dísella Lárusdóttir. Ástardrykkurinn hefur hlotið afbragðsgóða dóma jafnt gagnrýnenda sem almennra gesta:
***** (fimm stjörnur) - „Sigur í Óperunni“ – JVJ, DV
**** (fjórar stjörnur) - „Skemmtileg kvöldstund“ – PBB, Fréttablaðið
„…Söng-og leiktúlkun ofan af sviði færðist í æðra veldi“ – RÖP, Morgunblaðið
„Ótrúlega gaman – Hvílíkir söngvarar og túlkendur“ – SA, www.tmm.is
„Hrífandi og bragðgóður drykkur“ – PÁÁ, www.eyjan.is
Miðaverð á sýninguna í almenn sæti er 5.400 kr. og fá 25 ára og yngri 50% af miðaverði. Þá fá félagar í Vinafélagi Íslensku óperunnar, eldri borgara og öryrkjar 10% afslátt af miðaverði.
Sími miðasölu er 511-4200 og er svarað í síma alla virka daga kl. 10-18 og frá kl. 14 um helgar.
|