Fimmtudagskvöldið 30. apríl kl. 20 stígur Kór Íslensku óperunnar á svið Íslensku óperunnar og flytur fjölbreytta tónlist eftir íslensk tónskáld. Tónlistin tengist öll draugum og þjóðtrú með einum eða öðrum hætti og má því búast við að nokkur draugagangur verði í Óperunni þetta kvöld!
Verð kr. 1.800 - smelltu hér til að kaupa miða!
Yfirskrift skemmtunarinnar er Draugagangur í Óperunni og er þar vísað til verkefnavalsins, en á efnisskránni er tónlist sem öll tengist draugum eða þjóðtrú með einum eða öðrum hætti eftir íslensk tónskáld. Þar má meðal annars finna íslensk þjóðlög, tónverk og útsetningar eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Atla Heimi Sveinsson og Jón Ásgeirsson, en einnig Jónas Árnason og Magnús Eiríksson, svo dæmi séu tekin.
Meðleikari á píanó er tónlistarstjóri Íslensku óperunnar, Kurt Kopecky, en umsjón með dagskránni hefur Ágústa Skúladóttir leikstjóri. Skarphéðinn Þór Hjartarson tónlistarkennari og félagi í kórnum tók dagskrána saman.
Kór Íslensku óperunnar syngur í uppfærslum Íslensku óperunnar og var síðast valið inn í kórinn með inntökuprófum haustið 2007.
|