Vegna fjölda áskorana verða frábærlega vel heppnaðir tónleikar Prímadonnanna – sópransöngkvennanna Auðar Gunnarsdóttur, Elínar Óskar Óskarsdóttur, Huldu Bjarkar Garðarsdóttur og Þóru Einarsdóttur og Antoníu Hevesí píanóleikara – sem fram fóru í Íslensku Óperunni þann 14. mars sl., endurteknir sunnudagskvöldið 19.apríl n.k. kl. 20.
Tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins, Ríkarður Örn Pálsson, gaf tónleikunum fjórar stjörnur og sagði Prímadonnurnar hafa slegið rækilega í gegn. Í grein sinni hrósar hann meðal annars metnaðarfullri og fjölbreyttri efnisskrá, frábærri sviðsframkomu og glæsilegum söng.
Tryggið ykkur miða í tíma á www.opera.is eða www.midi.is. Ef um er að ræða afsláttarmiða, vinsamlegast hafið samband við Eddu Jónasdóttur, miðasölustjóra, s. 511-6400 / 511-4200.
Almennt miðaverð kr. 4.200
Verð með hópafslætti ( 5-10 manns ) kr. 4.000 - ( 20 eða fleiri ) kr. 3.500
50% afsláttur fyrir 25 ára og yngri
|